08.08.2026
Formar á IceFish 2026
Formar taka þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september 2026.
Á sýningunni kynna Formar fjölbreytt úrval EPS-flutningskassa fyrir sjávarútveg sem hannaðir eru til þess að tryggja framúrskarandi einangrun, vernd og gæði við flutning og meðhöndlun ferskra sjávarafurða.
Formar framleiðir fjölbreytt úrvar fiskikassa í mismunandi stærðum sem mæta kröfum nútíma fiskvinnslu.
Þið finnið okkur á sameiginlegum bás með Samhentum og Vörumerkingu, en hjá þeim verður hægt að kynna sér umbúða- og pökkunarlausnir, vélbúnað, merkingar og sérhæfða þjónustu fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu.
Við hlökkum til að taka á móti gestum á bás F-20.
Sjáumst á IceFish!

